Nedan finns texten till låten Hvísl Stjarnanna , artist - Sinmara med översättning
Originaltext med översättning
Sinmara
Í hrímköldu svartnætti
Leyndardjásn myrkranna anda
Af sverðinu kosmískt blóð drýpur
Seitlandi að handan
Augasteinn andans opnast
Í snertingu við hið ægifagra
Ljós himingeimsins
Hyldjúp fylgsni ókunnra vídda
Úr tómi handan tímans hafs
Upp ljúkast í eldglæringum
Hvísl stjarnanna
Berst úr brunnum óendanleikans
Handan orða berst kliður
Þúsund ólíkamaðra radda
Krjúpandi í lotningu frammi fyrir boðberanum
Handan hliðs hins hulda heims
Í skelfingu heilagrar endurfæðingar
Augasteinn andans opnast
Í snertingu við hið ægifagra
Ljós himingeimsins
Hyldjúp fylgsni ókunnra vídda
Úr tómi handan tímans hafs
Upp ljúkast í eldglæringum
Hvísl stjarnanna berst úr brunnum óendanleikans
Låtar på olika språk
Högkvalitativa översättningar till alla språk
Hitta texterna du behöver på några sekunder